Útskriftarferð 2008
Fjáröflun
30.09.2008 09:26:52 / ferd2008

Partí!

Halló halló ágætu skólasystkin nær og fjær. Nú er komið að því að hittast og rifja upp gamlar og góðar stundir í Öskju, Skotlandi og Tælandi. Fyrirvarinn er góður svo það er um að gera að taka þennan dag frá:

FÖSTUDAGINN 7. NÓVEMBER

Partýið verður haldið heima hjá henni Ólu að Erluási 48 í Hafnarfirði. Fyrir þá sem eru engu nær um staðsetninguna þá......

http://ja.is/simaskra?q=erlu%C3%A1si%2048&order=magic&map=185897#row185897

Í boði verður snakk og bland en hið ágæta áfengi þarf hver að koma með fyrir sig  <img src=" src="http://skotland2007.blogcentral.is/images/smileys/icon_smile.gif" />

Óla býður alla velkomna eftir kvöldmat þetta ágæta kvöld.

Allir sem hafa verið samferða (eða svo til) í land- og ferðamálafræðinni eru hvattir til þess að mæta, ekki síst sá mannskapur sem ferðaðist saman og villtist (með mannfræðing í fararbroddi) í Skotlandi og þeir sem voru í Tælandi í vor.

Endilega látið vita hvort þið komist með því að "kommenta" hér á síðunni eða með tölvupósti: olh6@hi.is

Kv, ÓLI.

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.06.2008 21:18:52 / ferd2008

Útskriftarpartý

Hæhæ 

Í tilefni af útskrift minni úr Háskóla Íslands langar mig að bjóða ykkur til fagnaðar með mér.

Partýið verður þann 16. júní í Heiðmörk, nánar tiltekið á Hjallaflötum í Hjalladal. Til þess að komast þangað skal keyra að Vífilsstaðaspítala, beygja þar í áttina að Maríuhellum og halda beint áfram meðfram Vífilstaðahlíð uns komið er að Hjallaflötum. Fyrir þá sem vilja glöggva sig á þessu sjálfir er mjög fínt kort hér http://www.heidmork.is/stylesheet.asp?file=05012006120929 sem hægt er að stækka. 

Fuðrað verður upp í grillinu um kl. 20:00 og svo verður vonandi stanslaust partý fram eftir nóttu. Til að brydda upp á djammið verður hægt að leika ýmsa þroskaleiki eins og frispí og fótbolta og svo verður farið í liðakeppni í kubb þar sem tvö bestu liðin munu á endanum spila til sigurs.

Svo má benda á að ekkert mál er að tjalda á svæðinu og því sparast í leigubíl þetta kvöldið....

Þó ég sé ekki lengur námsmaður á ég enn eftir að sjá megnið af peningunum sem fylgir launavinnu (enda nýkomi n frá Tælandi) og því bið ég fólk að koma með mat á grillið sjálft. Bolla verður þó í boði hússins meðan birgðir enda.

Vinsamlegast látið mig vita hvort mæta eigi í partýið eða ekki, svona svo ég geti nú glöggvað mig á því hvað ég á að blanda margra lítra af bollunni.

 

Kær kveðja,

Ingunn


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 06:28:19 / ferd2008

23. maí

Hópurinn tók hótel-bíl í outlet og verslunamiðstöð. Eftir það var bara afslöppun í hótelgarðinu, eða nánasta umhverfi.

Um kvöldið fórum við svo í Thai boxing. Tælendingarnir taka þetta greinilega mjög alvarlega. Byrjað var á því að standa upp fyrir kónginum sem er dáður og dýrkaður hérna. Ég er að tala um myndir af honum útum allt! Útvið vegakanta, á veitingastöðum, bara útum allt. Sýnt var myndband af kónginum og spilað alveg einstaklega leiðinlegt lag, sem hefur eflaust verið þjóðsöngurinn. Nú veit ég hvernig okkar þjoðsöngur hljómar fyrir útlendingum, úff vont í eyrun!

Hver keppandi tók 5 mínútna virðingardans áður en leikurinn byrjaði. Svo var bara kýlt og sparkað. Merkilegt samt að þeir virtust einhvern veginn vera dansandi í leiðinni. Á meðan var líka maður sem spilaði sérstakan takt undir. Ég tók nokkur vídjó, hendi þeim örugglega á youtube þegar ég kem heim.

Hendi inn meira frá ferðinni í kvöld, ætla að drífa mig út í sólina.
Kv, rakel


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 06:26:59 / ferd2008

22. maí

Hjá okkur eyjaferðaliðinu fór allur dagurinn í að komast aftur til Krabi. Við komum ekki á hótelið fyrr en um 7 um kvöldið.

Meðan við vorum á eyjunni veit ég að Davíð, Eyvi og Kolla fóru að Tiger Cave Temple sem er gyllt hof lengst uppá einu kalksteinsfjallinu. Davíð fór bara hálfa leið, enda óteljandi tröppur þangað upp. Hann sagði þó að það voru apar, fólk og svona hof-dót-eitthvað alla leiðina þannig að hann sá alveg helling. Kolla og Eyvi létu sig hafa það að fara alla leiðina upp og ég frétti að Kolla hefði þurft að vinda stuttbuxurnar sínar ettir á.

Hita og Svitakveðja,
Rakel


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 06:26:05 / ferd2008

21. maí

    Ingunn, Pálmi og Eiður fóru heim en við hin ákváðum að vera eina nótt í viðbót á Koh Pha Ngan, enda alger paradís á jörðu. Hvítur sandur, pálmatré og kalksteinsklettar í fjarlæ´gð hvert sem maður leit.

    Við tókum því bara rólega og nutum þess að vera í leti. Fengum okkur svo að borða um kvöldið á veitingastað staðarins sem er alveg á ströndinni, ekkert smá næs. Ég manaði liðið í að panta með mér grillaðan krókódíl bara til að smakka. Hann var mjög góður, bragðaðist smá eins og naut og smá eins og kjúklingur. Komumst því að þeirri niðurstöðu að grillaður krókódíll er á bragðið eins og nautlingur.

    Kv, Rakel


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 06:25:21 / ferd2008

20. maí

Ég, Eva Sif, Tommi, Stefán, Hera, Telma, Pálmi, Ingunn og Eiður lögðum snemma af stað til eyjunnar Koh Pha Ngan (kópanjan). Fyrst var það rúta, svo ferja í 2-3 tima og svo var okkur hent aftaná pallbíl og skutlað þvert yfir eyjuna. Það er voða vinsælt hér á Tælandi eða græja pallbílinn þannig að hann sé með þaki og tveimur bekkjum þannig að það sé hægt að stafla sem flestum aftaná. Svo er bara opið að aftan þannig að sá sem situr á endanum þarf að halda sér fast. Við keyrðum malarveg í svona 40 mínútur og komumst á leiðarenda drullug uppyfir haus og með hjartsláttartruflanir yfir því að bílstjórinn væri að reyna að drepa okkur með aksturslaginu.

Á Koh Pah Ngan gistum við á æðislegum stað sem er með litla Bungalow kofa. Í hverjum kofa var rúm fyrir 2, sturta og klósett. Nenni ekki að lýsa þessu frekar en þið getið skoðað myndir á síðunni: www.baanpanburi.com

Þá var farið á fullt að græja sig og haldið á Full moon partý. Við tókum long tail bát, sem er eins og venjulegur árabátur nema þrefaldur að lengd. Þegar Pálmi og Tommi voru að klöngrast uppí bátinn segir Pálmi við Tomma: Vá hvað það væri fyndið ef einhver mundi fljúga á hausinn hérna! Hvað gerist næst?? Pálmi tekur eitt skref og flýgur fram fyrir sig. Þetta leit út fyrir að vera ansi vont, en eftir að hafa látið þessi orð falla fékk hann sko enga vorkunn og við migum næstum í okkur af hlátri!! Tók okkur örugglega korter að jafna okkur. Ég er meira að segja farin að flissa hérna við tölvuna hehe

Partýið var á strönd hinu megin á eyjunni þar sem eru skemmtistaðir í röðum. Allir staðirnir voru með tónlist sem náði útá strönd og því gat maður bara valið sér stað eftir tónlistarsmekk. Öll ströndin var troðin af fólki. Þarna voru eldgleypar, áfengis- og matarsalar útum allt og svo var búið að koma fyrir nokkrum pöllum til að dansa á, til að fullnægja athyglisþörf fólks hehe. Anna Mjöll stökk uppá einn pallinn og dansaði eins og drottning. Ég manaði Tomma til að koma með mér uppá pallinn, en þegar ég var komin uppá þá beilaði hann, svikarinn sá. Ég tók bara dansinn með Önnu í staðinn, enda hittir maður ekkert af þessu liði þarna aftur.

Við rákumst þó á hóp íslendinga. 4-5 krakkar sem voru að bakpokaferðast.

Útum allt var hægt að láta mála á sig með skærum litum. Við ákváðum að slá til. Ég fékk mér íslenska fánann á hendina og iceland skrifað undir. Stefán gerðist það djarfur að fá sér risa dreka yfir alla bringuna. Hera náði sér bara í heila dollu af málingu og ákvað að klína á liðið hehe.

Þegar ég fór svo að rölta um með minn fallega fána á hendinni fór ég að fá komment frá hinum og þessum um að við værum nágrannar, fólk frá Norðurlöndunum og Skotlandi o.fl. Ég hitti svo hóp frá Kanada og hef greinilega misst mig í að lofsyngja Kanada því ég týndi hópnum mínum. Við komumst þó öll heil á húfi heim, í mis-annarlegu ástandi. Tommi og Stefán fóru bara ekkert að sofa heldur fengu þá snilldarhugmynd af fara í sólbað í hádegissólinni. Þeir fengu aldreilis að finna fyrir því og voru skaðbrenndir. Stefán fékk var með ofurgrænt aloa vera gel í andlitinu næstu daga og hefur hér með fengið viðurnefnið Hulk.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 06:22:57 / ferd2008

19. maí

í Bankok tók við okkur Monsoon rigning eins og hún gerist best (ég hef nefnilega svo mikið vit á því ehemm). En við stóðum bara og störðum meðan draumar okkar um sólbað og strandarlíf urðu að engu hehe. Hitinn var þó til staðar og við vorum ekki lengi að verða soðin í rakanum.

Svei mér þá ef flugvöllurinn í Bankok er ekki leiðinlegasti flugvöllur sem ég hef komið á. Hundleiðinlegt að bíða þar. Þar fékk ég þó aðeins þef af fánu Tælands þegar risastór bronslituð padda kom trítlandi til mín þegar ég sat á klóinu og gat hvergi flúið.


Flug til krabi með annarri jumbó og beint á hótelið og á loftræst herbergin aaaaahhh....

Þetta er þvílíkt flott, getið séð þetta hér: www.aonangvilla.com


Kv, Rakel


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 06:22:10 / ferd2008

18.maí

 
  1. Flugum eldsnemma til London. Þar var 10 tíma bið í næsta flug þannig að við tókum metro inní borgina. Þar var hlaupið á milli búða og endað á því að fá sér 1-2 kalda fyrir næsta flug. Þá tók við 11 tíma flug með Thai air. Ég var að fara í fyrsta skipti í svona jumbo þotu, ekkert smáræði þar á ferð. Ég verð að viðurkenna að ég var ekki alveg að treysta þessu flykki til að fljúga, en einhvern veginn hafðist það þó. Við fórum í loftið aðeins of seint þar sem einn náungi skilaði sér allt of seint í vélina. Ég komst svo að því að hann var blindfullur þear hann hrundi á mig þegar hann var að ganga fram hjá mér. Meira  að segja það fullur að hann ætlaði ekki að geta staðið aftur upp. Það var frekar fyndið þegar maðurinn byrjaði svo að hlaupa á ganginum þegar vélin var stödd í þvílíkri ókyrrð.

    1. Í vélinni fékk maður eins mikið af fríu áfengi og maður gat í sig látið. (ekki skrítið að maðurinn hafi verið ofurölvi). Vínið var þó borið fram í glösum á stærð við kertastjaka og ég átti svoltíð erfitt með að hlægja ekki þegar ég sá Davíð (2 metra manninn) drekka úr þessu, enda varla einn sopi fyrri hann.


    Ég hafði beðið um glúten og mjólkurlausan mat, en einhvern veginn hafði það klúðrast og ég fékk glútenlausan og vegeterian. Þess vegna fékk ég jógúrt og soðið grænmeti 4 sinnum allt í allt. Ég get ekki sagt að mér hafi fundist soðið spínat sérlega góður morgunmatur :/



» 0 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 06:20:57 / ferd2008

Kveðja frá Tælandi

 
  1. Hæ hæ, Rakel hérna.

  2. Í augnablikinu er ég að kafna úr hita og raka, enda var brjálaður stormur með öllu tilheyrandi fyrir svona hálftíma. Mér datt þess vegna í hug að setjast fyrir framan tölvuna með kók og segja aðeins frá ferðinni. Ég get samt auðvitað bara skrifað útfrá minni reynslu, en get eflaust rifjað aðeins upp hvað hinir hafa verið að gera.

  1. Í stuttu máli er búið að vera alveg æðislegt hjá okkur. Þessir stormar sem var búið að spá fyrir eru aðeins korters rigning svona annan hvern dag. Reyndar, þegar ég tala um rigningu þá er ég að meina monsoon brjálæðisrigningu. Ég hef aldrei séð annað eins. Maður er orðinn blautur í gegn á mínútu! En okkur Íslendingunum finnst bara fínt að fá smá kælingu.

  2. Sólin er mjög sterk hérna og ég held að allir séu búnir að brenna nema ég. Ég ætti samt að fara varlega í að segja þetta því að í fyrradag var ég að gorta mig af því að það væru allir búnir að fá í magann nema ég. Ég fékk síðan rækilega að finna fyrir því og svaf með fötu hliðiná mér þá nóttina. Ætli ég sólbrenni þá ekki í dag!?

Það er alveg á hreinu að þegar maður fer til Tælands þá er nauðsynlegt að skilja pjattið eftir heima! Það eru pöddur útum allt og uppum allt. Við erum öll útbitin, enda um einstaklega girnilegt fólk að ræða. Sumir hafa þó farið verr útúr því en aðrir. Jónsi endaði hjá lækni og fékk sterasprautu og pensilín því hann fékk rosalegar sýkingar. Við Harpa fengum báðar bólgna ökla. Mjög smart. Hinir hafa held ég bara fengið kláðann sem fylgir þessu.

Svo er það hreinlætið. Ég held að einu hreinu klósettin séu á hótelunum. Það er sérstaklega vinsælt að hafa útmigin stand klósett, sem eru ekki beint vinsæl hjá okkur stelpunum.

Enskukunnáttan hjá þessu liði er alveg brilliant! Fyrir þau ykkar sem hafa skoðað www.engrish.com , þetta er svona í alvörunni!


Allir í hópnum eru orðnir brúnir og sætir, nema ég, ég er bleik og sæt. En hver segir svo sem að bleikur sé verri en brúnn!? Er þetta ekki bara smekksatriði? Híhí

Ég er búin að fá ófá kommentin um hvað ég er hvít (og glær). Hugsa sér ef ég væri ekki með húmor fyrir sjálfri mér, þá kæmi ég heim niðurbrotin manneskja. Kannski maður skelli á sig heilli túbu af brúnkukremi, bara svona til að vera með ;)


En jæja, nóg af blaðri. Ég ælta að reyna að segja ykkur aðeins frá hverjum degi. Skipti því upp svo þið neyðist ekki til að lesa allt saman.


Btw, ég er að skrifa þetta á office skjal, til að spara nettímann minn og það er alveg hriklega flókið að setja inn broskarla á þessu lyklaborði. Þið bara bætið þeim inn með ímyndunaraflinu .....blikkkarl hehe


Kveðja úr hitanum.

Rakel


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.05.2008 11:46:17 / ferd2008

Tæland 1 dagur...

Sælt veri fólkið

Nú langar mig að spyrja að tvennu.

Er fólk að rotta sig eitthvað saman um að fara í bíl? Eða á bara að taka rútuna? Allavegana, ef einhver er að hugsa um að keyra en vantar fólk í bílinn sinn þá megið þið alveg hafa samband við okkur Pálma. Við verðum í Neðstaleiti. Ég myndi alveg vilja keyra sjálf en bílinn er víst bilaður.

Og annað.  Ég geri ráð fyrir að allir ætli að innrita sig hjá Flugleiðum sjálfir. Ekki það að ég sé neitt svaka háð ykkur  en eigum við ekki að reyna að sitja saman? Ég sé meira að segja að það er hægt að bóka inn 6 farþega í einu, ef fólk vill rotta sig saman um það.

 Svo.. Allir að velja sæti eins aftarlega í vélinni og hægt er?

Kveðja,
Ingunn


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 13:45:19 / ferd2008

Ferðaáætlun

Vildi bara minna alla á ferðaáætlunina sem ég setti inn fyrir þó nokkru síðan í tenglinum hér vinstra megin á síðunni. Einnig er hægt að smella hér. Það er ekkert óvitlaust að prenta hana út rétt áður en haldið er af stað í ferðina og hafa meðferðis í ferðalaginu. Ég bætti við í dag bókunarnúmerinu okkar í Icelandair flugunum fyrir þá sem vilja innrita sig á netinu eða í sjálfsafgreiðslustöðvunum í Leifstöð. Ef einhverjar fleiri upplýsingar bætast við hendi ég þeim þarna inn - þannig að ekki prenta neitt fyrr en rétt áður en við förum út.

kveðja,
Tommi "fararstjóri".

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 11:02:18 / ferd2008

Full Moon partý

Hæ allir,

ég (Tommi), Stefán, Ragna, Hera, Eva og Rakel erum búin að panta okkur gistingu á eyjunni Ko Pha Ngan 20. maí til 21. maí þar sem við ætlum að reyna að komast á Full Moon partýið heimsfræga. Þar sem ég vissi ekki um fleiri sem voru ákveðnir í að fara ákvað ég að panta því bara fyrir þessa 6 en að sjálfsögðu hvetjum við sem flesta sem vilja fara að reyna gera slíkt hið sama. Við notuðumst við þessa síðu til að panta gistingu og þetta er linkur inn á staðinn þar sem við gistum en það eru fleiri möguleikar í boði. Þeir sem ætla að gera þetta ættuð að ath alltaf skilmálana hjá þessum aðilum þar sem oftast þarf að gista í 7 nætur í kringum full moon - á þessari gistingu er hins vegar ekki þörf á því :)

Svo er líka sá hængur á að við getum ekki bókað okkur far þangað fyrr en við komum og við erum að treysta bara á það takist en þetta er daginn eftir að við komum til Krabi (20. maí) og er staðsett á eyju hinum megin við meginlandið frá Krabi.


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.04.2008 10:34:00 / ferd2008

alltaf kóka kóla...

Hæhæ

Ísskápurinn minn er á leiðinni upp í Öskju, sit hann uppí kortaherbergið á 3.hæð. Það má þá nota hann ef einhver ætlar að vera í Öskju á annað borð að læra. Kalt gos / vatn er alltaf góð söluvara, ekki satt...
 Þú getur þess vegna komið með þinn ísskáp líka Rakel ef fólk sættir sig við hávaðann...
Við getum svo séð til hvað gerist eftir helgi... Ég er allavegana farin út úr bænum.
sjáumst,
Ingunn

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.04.2008 10:20:35 / ferd2008

Ammælispartey


  Smá samkeppni í gangi.... ég á líka

 afmæli laugardaginn, 5.apríl 8|og er með

 afmælispartý sem ykkur er að sjálfsögðu

 boðið í....þannig að núna er bara að velja,

 hvora elskiðið meira???:p


P.s stemmingin hjá mér verður svona.....




Vilt þú verða svona sexy looking?

þá er pleisið Akurholt 17 útí sveit (mosó)

um kl 21:00



» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 22:59:22 / ferd2008

Afmælisboð!

Gleðskapur verður haldinn að heimili Kolbrúnar Georgsdóttur í tilefni 27. ára afmælis hennar á laugardaginn 5. apríl... og ykkur er boðið!



Heimilisfang: Vesturberg 169. Tímasetning: 21:00. Klæðnaður: Snyrtilegur. Land: Kína.

Kolbrún lofar þreföldum ormi og 50 armbeygjum!




» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 8442
Dagsetning
12. mars 2010
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 663 dögum
Thailand baby!